Bloggfærslur mánaðarins, desember 2012

Samanburður á verðlagi og launum í Noregi og á Íslandi !!!!!!!! SLÁANDI

Við hjónin vorum á ferð í Noregi í síðasta mánuði í tilefni fimmtugsafmælis bróður míns, en hann hefur búið í litlu þorpi í suður Noregi í 30 ár tæp. Við fórum í smá verslunarleiðangur, bæði í fataverslanir og í matvöruverslun. Það sem kom okkur óþægilega á óvart var verðlagið en á fötum var verðið töluvert lægra í krónum talið en hér heima, aftur á móti var verð á matvöru mjög svipað og á Íslandi. Þegar kom að raftækjum var munurinn enn meiri þ.e. mun ódýrara í Noregi en á Íslandi.

Hvað er það sem veldur þessu ? Ekki geta það verið launin, því laun í Noregi eru tvöfalt hærri en hér á landi. Er það vaxtastigið og verðtryggingin ? Eru það háir skattar, gjöld og tollar ? Er það há álagning kaupmanna ? Er það lágt gengi krónunnar ?

Eflaust er það allt þetta sem spilar þarna inn í hversu verðlag á öllu er hér hátt,en það er ansi fróðlegt að skoða hvað iðnaðarmaður í Noregi annars vegar og iðnaðarmaður á Íslandi hins vegar eru lengi að vinna fyrir þessum vörum. Tók saman til fróðleiks lista yfir vörur úr auglýsingabæklingum hér heima og frá Noregi, umbreytti því í klukkustundir og niðurstaðan er sláandi, það er ekki að furða að við stynjum undan því að draga fram lífið hér. 

 ÍslandLaun pr klst 1.700,00 kr.  
 Laun pr mín     28,33 kr.  
    
 ÍskMínútufjöldi 
Appelsínur pr. Kg.                318 kr. 11,22mín.
Svínarifjasteik pr. Kg                798 kr. 28,16mín.
Jólaskinka pr. Kg.             1.199 kr. 42,32mín.
Kjúklingabringur skinnlausar pr kg             1.998 kr. 70,52mín.
Svína fillet pr kg             2.895 kr. 102,18mín.
Kartöflur pr kg                180 kr. 6,35mín.
Rauð vínber pr. Kg                699 kr. 24,67mín.
Ferskur ananas pr stk                650 kr. 22,94mín.
Oreo kex 154 gr. Pakki                385 kr. 13,59mín.
Pepperoni álegg pr kg             4.285 kr. 151,24mín.
Gróft brauð 600 gr                379 kr. 13,38mín.
Almondy terta 400 gr             1.258 kr. 44,40mín.
Svínagúllas pr kg             1.198 kr. 42,28mín.
Bensín 95 okt. 1 ltr.                254 kr. 8,96mín.
Playstation 3 500 gb           69.895 kr. 2466,88mín.
Samsung 55 tommu sjónvarp LED Smart         429.995 kr. 15176,29mín.
    
Samtals         516.386 kr. 18225,39mín.
    
  303,76klst.
    
Bara matvara           16.242 kr. 573,25mín.
    
  9,55klst.
 NOREGURLaun pr klst    215,00 kr.  
  Laun pr mín        3,58 kr.  
    
 NokMínútufjöldi 
Appelsínur pr. Kg.           9,90 kr. 2,76mín.
Svínarifjasteik pr. Kg         29,90 kr. 8,34mín.
Jólaskinka pr. Kg.       129,00 kr. 36,00mín.
Kjúklingabringur skinnlausar pr kg       149,75 kr. 41,79mín.
Svína fillet pr kg       149,00 kr. 41,58mín.
Kartöflur pr kg           7,90 kr. 2,20mín.
Rauð vínber pr. Kg         29,90 kr. 8,34mín.
Ferskur ananas pr stk         14,90 kr. 4,16mín.
Oreo kex 154 gr. Pakki         16,90 kr. 4,72mín.
Pepperoni álegg pr kg       215,68 kr. 60,19mín.
Gróft brauð 600 gr         19,90 kr. 5,55mín.
Almondy terta 400 gr         44,90 kr. 12,53mín.
Svínagúllas pr kg         69,90 kr. 19,51mín.
Bensín 95 okt. 1 ltr.         15,45 kr. 4,31mín.
Playstation 3 500 gb     1.795,00 kr. 500,93mín.
Samsung 55 tommu sjónvarp LED Smart   14.995,00 kr. 4184,65mín.
    
Samtals   17.692,98 kr. 4937,58mín.
    
  82,29klst.
    
Bara matvara       887,53 kr. 247,68mín.
    
  4,13klst.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband